Leiðbeiningar vegna BMW ábyrgðarskilmála

Þeir sem fylgja leiðbeiningunum um ábyrgðaskilmála upplifa hraða- og snurðulausa þjónustu þurfi bílinn þeirra óvænt á ábyrgðaviðgerð að halda:

BMW veitir 2 ára ábyrgð á nýjum BMW bílum. Til að viðhalda ábyrgðinni þarf notandi (eigandi) bílsins að fara eftir ábyrgðarskilmálunum. Vanræksla á að framfylgja ábyrgðarskilmálum getur leitt til þess að ábyrgð fellur niður. Vanræksla kemur ekki í veg fyrir lagalegan rétt notanda (eiganda) samkvæmt íslenskum lögum.

1. Ef eigandi heldur áfram að keyra bifreið sem hefur bilað getur ábyrgð fallið niður. Allar bilanir þarf að tilkynna tafarlaust til viðurkennds BMW þjónustuaðila. Tafir á að tilkynna um bilun geta leitt til óþæginda seinna.
2. Ef bíllinn hefur verið þjónustaður af öðrum en viðurkenndum þjónustuaðila BMW getur þjónustuaðili BMW hafnað ábyrgð hafi viðurkenndir varahlutir ekki verið notaðir eða að viðgerðin hafi sannanlega ekki staðist gæðakröfur BMW.
3. Vanræksla á að fylgja eftir viðukenndu þjónustueftirliti BMW getur leitt til þess að ábyrgð fellur niður.
4. Ábyrgðin nær ekki til bilana sem upp kunna að koma vegna misnotkunnar, vanrækslu, árekstra eða annars eðlilegs slits og tæringar sem á sér stað við eðlilega notkun.
5. BMW bílar eru smíðaðir samkvæmt afar nákvæmum gæðastöðlum til að uppfilla stöngustu kröfur um nýtingu eldsneytis og eiginleika. Breytingar sem gerðar eru á BMW bílum og leiða til bilana að einhverju tagi eru alltaf gerðar á ábyrgð eiganda (notanda). Breytingar á BMW bílum geta einungis verið á ábyrgð umboðs- og/eða þjónustuaðila BMW ef breytingarnar eru fyrirfram viðurkenndar af BMW.
6. BMW bifreiðin var framleidd sem fólksflutningatæki fyrir allar almennar og venjulegar aðstæður. Ekki er ætlast til að bifreiðin sé notuð við aðrar aðstæður svo sem í akstursíþróttakeppnir, rallý, spólkeppnir (Drift) eða aðrar líkar aðstæður. Umboðs- og/eða þjónustuaðili áskilur sér rétt til að hafna ábyrgð sé bifreiðin notuð á ofangreindan hátt.
7. Ábyrgð á mannsláti, líkamlegum meiðslum, eignaskemmdum eða tekjutapi, hvort sem það stafar beint eða óbeint frá atvikum sem tengjast ábyrgðinn, fellur ekki undir ábyrgð bílsins. Þessu skilyrði er ekki ætlað að takmarka eða útiloka ábyrgð á mannsláti eða líkamstjóni vegna framleiðslugalla eða vanrækslu sem framleiðandi eða starfsmenn hans verða uppvísir af. Eiganda (notanda) er skylt að sjá til þess að bifreiðin sé ekki notuð án hefðfbundinna lögboðinna bifreiðatrygginga.

Dekk
Dekk BMW bifreiða eru tryggð af framleiðanda dekkjanna fyrir efnis- og smíðagöllum sem upp kunna að koma í dekkjunum. Mál af þessu tagi skulu fara í gegnum viðurkennda þjónustuaðila BMW eða viðukennda umboðsaðila dekkjanna sem um ræðir sem sjá um að ganga frá bótum. Við mat á bótum skal ávallt tekið tillit til notkunnar dekkjanna til þess tíma sem bæturnar miðast við.

Stillingar
Stillingar eru í ábyrgð fyrstu 12 mánuðina. Þetta á þó ekki við sé hjólastilling hluti af reglubundnu viðhaldseftirliti.

Aðrir hlutir
Afstilltar hjólastillingar sem rekja má til vanrækslu framleiðanda eru í ábyrgð fyrstu 12 mánuði frá afhendingu. Rúðuþurrkublöð sem ekki hafa verið rétt sett í hjá famleiðanda og því verið til vandræða eru í ábyrgð fyrstu 3 mánuðina.

BMW varahlutir
BMW varahlutir sem settir eru í bifreiðina eftir að ábyrgð líkur eru í 2ja ára ábyrgð.

Ábyrgð á málningu
Málningarábyrgð nær yfir galla svo sem mislitun, og aðra sýnilega og augljósa galla á yfirborði málaðra flata bifreiðarinnar, sem rekja má til vanrækslu framleiðanda. Ábyrgðin er til 3ja ára frá afhendingu.
Allar ábyrgðarviðgerðir sem snúa að málningarvinnu skulu ákveðnar af viðurkenndum umboðs- og/eða þjónustuaðila BMW.

Leiðbeiningar um viðhald málningarábyrgðar:
1. Þrátt fyrir að málning og málningarvinna standist allar nútímakröfur um gæðir og endingu við allt venjulegt álag, sem reikna má með að bifreiðin lendi í, er rétt að benda eiganda (notanda) á að ýmiss mengandi útblástur frá iðnaði getur skemmt áferð á lakki og því er nauðsynlegt að viðhalda áferðinni með réttri meðhöndlun. Við mælum með leiðbeiningum um meðhöndlun málningar í eigandahandbók bílsins.
2. Fugladrit getur verið verulega tærandi og hæglega skemmt lakk. Því er mikilvægt að þrífa allt fugladrit af við fyrsta tækifæri.
3. Skemmdir á málningu bifreiða sem verða vegna mengandi útblásturs frá iðnaði eða fugladrits falla ekki undir ábyrgð bílsins.

Ryðvarnarábyrgð
Allar BMW bifreiðar framleiddar eftir 1. janúar 2004 eru með 12 ára ryðvarnarábyrgð.
Allar viðgerðir sem falla undir ryðvarnarábyrgðina skulu framkvæmdar af viðurkenndum umboðs- og/eða þjónustuaðila BMW. Ábyrðgin nær til ryðs sem kemur að innan frá úr huldum hlutum bifreiðarinnar svo sem innan á hurðum og innan úr lokuðum hólfum.
Ábyrgðin nær ekki til skemmda sem rekja má til árekstra, steinkasts eða annara utanaðkomandi þátta.

Leiðbeiningar um viðhald ryðvarnarábyrgðar:
Til að tryggja að viðgerðir sem falla undir ryðvarnarábyrgð bílsins séu framkvæmdar á skjótan og hagkvæman hátt eru eigendur BMW bíla vinsamlegast beðnir um að fylgið eftirfarandi leiðbeiningum.
1. Bifreiðina á að skoða af viðurkenndum BMW þjónustuaðila reglulega samkvæmt fyrirliggjandi þjónustueftirliti.
2. Viðgerðir sem þarf að framkvæma á yfirborðshlutum bifreiðarinnar og ná til ryðvarnarábyrgðar skulu framkvæmdar af viðkenndum BMW þjónustuaðila samkvæmt fyrirliggjandi stöðlum BMW.
3. Bifreiðar sem lenda í meiriháttar tjóni og þarfnast viðgerðar meðan á ryðvarnarábyrgðartímbilinu stendur eru í ábyrgð enda:
a. Er viðgerðin framkvæmd samkvæmt stöðlum BMW.
b. Viðgerðin er framkvæmd af viðurkenndum aðila.
4. Ábyrgðin er einungis í gildi séu notaðir viðurkenndir BMW hlutir.

Internet tengingar Netvafrar niðurhal Veftré Skilmálar Aðrar BMW heimasíður