Stígðu um borð og upplifðu framtíðina. BMW i3 er fullur af framsæknum tæknilausnum sem koma að góðum notum í daglegu amstri. Bíllinn tengir þig við umheiminn, færir þér nýjustu fréttir og upplýsingar, auðveldar þér skipulagið og fer með þig hvert sem þig langar að fara. Þetta er bíll sem er ávallt til reiðu búinn að kanna ný lönd. Glæsilegur bíll sem státar af nútímalegri hönnun og skilar rafmagnaðri akstursánægju.
HELSTU ATRIÐI BMW i3.
Kynntu þér framsækna hönnun, rafmagnaða aksturseiginleika, feiknagott drægi og snjalltækni.

YTRA BYRÐI BMW i3.

INNANRÝMI BMW i3.

RAFMAGNAÐIR AKSTURSEIGINLEIKAR BMW i3.

Drægi BMW i3.

HUGVITSSAMLEG TÆKNI Í BMW i3.

YTRA BYRÐI BMW i3.
Framsækinn á öllum sviðum.
Allt ytra byrði BMW i3 býr yfir sportlegu yfirbragði. Tvílitir fletir og stuttar, útstæðar brúnir eru einkenni nútímalegrar hönnunar.

INNANRÝMI BMW i3.
Fjölþætt og rúmgott innanrými.
Einstakt og rúmgott innanrýmið í BMW i3 er áþreifanlega glæsilegt; eins og blasir við um leið og dyrnar eru opnaðar. Með opinni og aðgengilegri hönnuninni er auðvelt að stíga inn í bílinn og ferma hann – samt er öryggið áfram í fyrirrúmi og þegar dyrnar eru lokaðar gegna hurðirnar hlutverki miðstoðar til verndar.

RAFMAGNAÐIR AKSTURSEIGINLEIKAR BMW i3.
Tilbúinn í sprettinn.
Allt frá undirvagni til farþegarýmis – snjallar aksturslausnir og léttir íhlutir skila óviðjafnanlegum aksturseiginleikum BMW i3.

Drægi BMW i3.
Sterkari. Lengri. Lengra.
Það hefur aldrei verið jafnauðvelt að ná forskoti: BMW i3. Ný og öflug rafhlaða gefur rafmótornum enn meira afl en áður – og að sama skapi meiri akstursánægju.

HUGVITSSAMLEG TÆKNI Í BMW i3.
Stafræn þjónusta og akstursaðstoðarkerfi.
Ekki missa af neinu á meðan þú ekur. Vertu alltaf með nýjustu upplýsingarnar. Það er einmitt það sem þér býðst með fjölbreyttu úrvali stafrænnar þjónustu og akstursaðstoðarkerfa í BMW i3.
5 SPARNEYTNI STAÐREYNDIR
- 01 6,9 sek frá 0 upp í 100 km/klst (BMW i3s)
- 02 184 hö 250 Nm tog (BMW i3s)
- 03 Engin jarðeldsneytisnotkun
- 04 Engin CO2 losun
- 05 Nægt drægi
HÖNNUN BMW i3.
Bíll tíðarandans, túlkaður á nútímalegan hátt.












BMW i3s.
Leiftursnöggur. Hlaðinn ástríðu.
Yfirmáta sportlegur og algerlega rafmagnaður: BMW i3s státar bæði af frábærum aksturseiginleikum og nútímalegum tæknilausnum. Endurhönnuð sjálfvirk stöðugleikastýringin er enn hraðvirkari en áður og skilar meira gripi og stöðugleika við hröðun og hemlun. Sjálfvirka spólvörnin virkar núna einnig í beygjum og á allt að 100 km/klst. hraða. SPORT-akstursstillingin skilar jafnvel enn sportlegri aksturseiginleikum en áður. Þegar ökumaðurinn stígur á eldsneytisgjöfina bregst BMW i3s hraðar við ef hleðsla rafhlöðunnar er nægileg. Auk þess bæta sportstýringin, samsvarandi stýrisátak og sportleg fjöðrunin (lækkuð um tíu millimetra) enn við snerpuna.
AUGLJÓSIR STYRKLEIKAR.
SPORTBÍLL MEÐ EINUM HNAPPI.
ÞÆGINDI ÖKUMANNS: AF ÖRYGGI.
SKILAR ÞÉR AFLI. UMSVIFALAUST.
ELDSNEYTISNOTKUN OG LOSUN KOLTVÍSÝRINGS.
-
BMW i3 (120 Ah):
Rafmagnsnotkun í kWh/100 km: 13,1
Losun koltvísýrings í g/km (blandaður akstur): 0
Eldsneytisnotkun í l/100 km (blandaður akstur): 0
Rafmagnsdrægi í km (blandaður akstur): 359
Rafmagnsdrægi miðað við hefðbundna notkun í km: allt að 260BMW i3s (120 Ah):
Rafmagnsnotkun í kWh/100 km: 14,6–14,0
Losun koltvísýrings í g/km (blandaður akstur): 0
Eldsneytisnotkun í l/100 km (blandaður akstur): 0
Rafmagnsdrægi í km (blandaður akstur): 330 – 345
Rafmagnsdrægi miðað við hefðbundna notkun í km: allt að 260Uppgefnar tölur yfir eldsneytisnotkun, losun koltvísýrings og rafmagnsnotkun voru fengnar í samræmi við gildandi útgáfu af Evrópureglugerð (EB) 715/2007 þegar gerðarviðurkenning átti sér stað. Tölurnar eiga við um bíl í grunnútfærslu í Þýskalandi og í birtu drægi er tillit tekið til aukabúnaðar og ólíkra felgu- og hjólbarðastærða sem eru í boði fyrir valda gerð.
Skilvirknigildi hvað varðar losun koltvísýrings eru ákvörðuð í samræmi við tilskipun 1999/94/EB og gildandi útgáfu Evrópureglugerðarinnar. Uppgefin gildi byggjast á eldsneytisnotkun, koltvísýringsgildum og orkunotkun samkvæmt NEDC-prófun fyrir viðkomandi flokk.
Nánari upplýsingar um eldsneytisnotkun og losun koltvísýrings í nýjum fólksbílum er hægt að finna í „handbók um eldsneytisnotkun, losun koltvísýrings og rafmagnsnotkun í nýjum fólksbílum“, en hana er hægt að nálgast á öllum sölustöðum og á https://www.dat.de/angebote/verlagsprodukte/leitfaden-kraftstoffverbrauch.html.
ELDSNEYTISNOTKUN OG LOSUN KOLTVÍSÝRINGS.
BMW i3 (120 Ah):
Rafmagnsnotkun í kWh/100 km: 14,2
Losun koltvísýrings í g/km (blandaður akstur): 0
Eldsneytisnotkun í l/100 km (blandaður akstur): 0
Rafmagnsdrægi í km (blandaður akstur): 335
Rafmagnsdrægi miðað við hefðbundna notkun í km: allt að 260
BMW i3s (120 Ah):
Rafmagnsnotkun í kWh/100 km: 14,7
Losun koltvísýrings í g/km (blandaður akstur): 0
Eldsneytisnotkun í l/100 km (blandaður akstur): 0
Rafmagnsdrægi í km (blandaður akstur): 325
Rafmagnsdrægi miðað við hefðbundna notkun í km: allt að 260
Uppgefnar tölur yfir eldsneytisnotkun, losun koltvísýrings og rafmagnsnotkun voru fengnar í samræmi við gildandi útgáfu af Evrópureglugerð (EB) 715/2007 þegar gerðarviðurkenning átti sér stað. Tölurnar eiga við um bíl í grunnútfærslu í Þýskalandi og í birtu drægi er tillit tekið til aukabúnaðar og ólíkra felgu- og hjólbarðastærða sem eru í boði fyrir valda gerð.
Skilvirknigildi hvað varðar losun koltvísýrings eru ákvörðuð í samræmi við tilskipun 1999/94/EB og gildandi útgáfu Evrópureglugerðarinnar. Uppgefin gildi byggjast á eldsneytisnotkun, koltvísýringsgildum og orkunotkun samkvæmt NEDC-prófun fyrir viðkomandi flokk.
Nánari upplýsingar um eldsneytisnotkun og losun koltvísýrings í nýjum fólksbílum er hægt að finna í „handbók um eldsneytisnotkun, losun koltvísýrings og rafmagnsnotkun í nýjum fólksbílum“, en hana er hægt að nálgast á öllum sölustöðum og á https://www.dat.de/angebote/verlagsprodukte/leitfaden-kraftstoffverbrauch.html..