epaasBanner.content.text
Frábær akstur framundan: Nýr BMW X1 setur sín eigin viðmið. Sportleg hönnun hans undirstrikar kraftmikla eiginleikana. Þessi bíll er X frá A til Ö, með ytra byrði sem einkennist af stuttri skögun og löngu hjólhafi sportjeppans. Hlutverk hans á veginum er greinilegt. Saman tryggja svo einstakur sveigjanleiki og nýjasta tækni hámarksþægindi alla leið, alltaf.
ÁSTÆÐUR TIL AÐ AKA AF STAÐ.
Helstu atriði BMW X1.

SPORTLEG OG KRÖFTUG HÖNNUN YTRA BYRÐIS.

MIKIÐ PLÁSS OG SVEIGJANLEIKI.

AFL TIL AFREKA.

UPPFÆRÐ TÆKNI.

SPORTLEG OG KRÖFTUG HÖNNUN YTRA BYRÐIS.
BMW X1 sker sig auðveldlega úr með sportlegum hlutföllum og einstökum einkennum BMW X.

MIKIÐ PLÁSS OG SVEIGJANLEIKI.
Mikið höfuð- og fótarými ásamt sveigjanlegri stillingu aftursæta tryggja tilfinningu fyrir góðu rými.

AFL TIL AFREKA.
Öflugar vélar, fínstillt gírskipting og AVS-fjöðrun (aukabúnaður), auk BMW xDrive, skila fullkominni lipurð.

UPPFÆRÐ TÆKNI.
BMW X1 er búinn aðdáunarverðum tækninýjungum tengdum þægindum og samskiptum.
Nýr BMW X1 býr yfir óbeisluðum krafti sem tekist getur á við hvers kyns undirlag – hvort sem er innanbæjar eða á torfærari slóðum.
TIL Í ALLT.
Hönnun BMW X1.








VEKUR HRIFNINGU.
Afdráttarlaust tvískipt BMW-grillið og glæsilegir stuðarar BMW X1.

ALLT UPPLJÓMAÐ.
Rennileg sjálfvirk LED-aðalljósin og LED-þokuljósin.


KRAFTUR Í KYRRSTÖÐU.
LED-afturljós og fallegir listar á útblástursröri innramma öflugan afturhlutann.

FRELSI OG FALLEG LÖGUN.
Þakgluggi úr gleri hleypir dagsljósinu óhindrað inn og skapar góða tilfinningu fyrir miklu rými.

FYRIRMYND Í HVERJU SMÁATRIÐI.
Þar á meðal er „X1“ sem varpað er á jörðina með LED-lýsingu.

LOKKANDI ÆVINTÝRI.
Innanrýmið er með haganlega hönnuðu ökumannsrými sem BMW er þekktur fyrir ásamt nýstárlegum hágæðastíleinkennum.

KEMST LENGRA EN VEGURINN NÆR.
Fjölhæft afl BMW X1.
Viðbótarkostur í öðrum bílum er staðalbúnaður í BMW X-línunni: framúrskarandi akstursgeta við allar aðstæður. Framsæknar tæknilausnir á borð við Steptronic-gírskiptingu eða BMW xDrive-aldrif og sportlegar en jafnframt sparneytnar þriggja strokka og fjögurra strokka BMW TwinPower Turbo-vélar gera BMW X1 að traustum ferðafélaga hvert sem halda skal.
KEMST LENGRA EN VEGURINN NÆR.
Fjölhæft afl BMW X1.
Viðbótarkostur í öðrum bílum er staðalbúnaður í BMW X-línunni: framúrskarandi akstursgeta við allar aðstæður. Framsæknar tæknilausnir á borð við Steptronic-gírskiptingu eða BMW xDrive-aldrif og sportlegar en jafnframt sparneytnar þriggja strokka og fjögurra strokka BMW TwinPower Turbo-vélar gera BMW X1 að traustum ferðafélaga hvert sem halda skal.
HIÐ HEFÐBUNDNA LAGT TIL HLIÐAR.
Framsækin skjátækni BMW X1.
Upplifðu framtíðina í allri sinni dýrð og litskrúða. Með 10,25" stjórnskjá með snertistjórnun, BMW-sjónlínuskjá í lit og mælaborði í svartri klæðningu hefurðu allar upplýsingar öllum stundum í nýjum BMW X1.

10,25" stjórnskjár.
10,25" stjórnskjár með mikilli upplausn og snertistjórnun býður upp á allar aksturstengdar upplýsingar á einfaldan máta. Skjánum er stjórnað með einföldum stjórntækjum á aðgerðastýrinu, með iDrive-hnappinum á miðstokknum og með snertistjórnuninni. Einnig er hægt að velja fjölmarga eiginleika leiðsagnar- og margmiðlunarkerfisins með raddskipunum.

BMW-sjónlínuskjár.
BMW-sjónlínuskjár í lit varpar aksturstengdum upplýsingum í sjónlínu ökumannsins til að stuðla að fullri einbeitingu við akstur. Skjárinn birtir meðal annars upplýsingar um aksturshraða, leiðsögn, upplýsingar um hraðatakmarkanir og bann við framúrakstri, auk símanúmera- og afþreyingarlista.

Mælaborð með svartri klæðningu.
Mælarnir eru með svartri mattri áferð og tveimur örmjóum krómhringjum og felldir á nútímalegan og fágaðan máta inn í mælaborðið. Auk þess eru ökumanni birtar viðeigandi upplýsingar á 5,7" litaskjá.
ÓÞRJÓTANDI AFL.
Kynntu þér sportlegan og sparneytinn BMW X1 xDrive25e*.
BMW X1 xDrive25e*.
- 220 hö fyrir hreina akstursánægju
- Allt að 57 km drægi *
- Eldsneytisnotkun frá 2,0 í l á 100km í blönduðum akstri *
- CO2 losun frá 43 g á km í blönduðum akstri *
Eldsneytisnotkun og losun koltvísýrings.
-
BMW X1 xDrive25e:
Blandaður (l/100km): 2,1–1,9
CO2 í blönduðum akstri(g/km): 48–43Upplýsingar um eldsneytisnotkun, losun koltvísýrings og orkunotkun eru ákvarðaðar í samræmi við staðlað mælingarverklag í reglugerð VO (ESB) 715/2007 í þeirri útgáfu sem var í gildi þegar gerðarviðurkenning fór fram. Tölurnar eiga við um bíl í grunnútfærslu í Þýskalandi og í birtu drægi er tillit tekið til aukabúnaðar og ólíkra felgu- og hjólbarðastærða sem eru í boði fyrir valda gerð.
Nánari upplýsingar um opinbera tölfræði hvað varðar eldsneytisnotkun og losun koltvísýrings í nýjum fólksbílum er að finna í „Viðmiðanir um eldsneytisnotkun og losun koltvísýrings í nýjum fólksbílum“ (hægt að nálgast á öllum sölustöðum) frá DAT Deutsche Automobil Treuhand GmbH, Hellmuth-Hirth-Str. 1, 73760 Ostfildern, Þýskalandi og á https://www.dat.de/co2
Gildin byggjast á nýrri reglugerð WLTP og eru endurreiknuð yfir í gildi í samræmi við NEDC til að tryggja eðlilegan samanburð á milli þessara ökutækja. Hvað varðar ökutækjaskatta eða önnur gjöld sem byggjast (a.m.k. að einhverju leyti) á losun koltvísýrings kunna losunargildi koltvísýrings að vera önnur en hér koma fram.