Vegna reglulegra uppfærslna á hugbúnaði geta hönnun og útlit skjásins sem sýnd eru í kynningarefni verið frábrugðin raunverulegu útliti skjásins í bílnum þínum.
Kostir BMW ConnectedDrive.
Upplifðu enn meira á stafrænan hátt.
BMW ConnectedDrive sameinar ólíka stafræna þjónustu og skapar þannig áreynslulausa akstursupplifun. Þjónustan einfaldar umsjón bílsins og eykur þægindi og notagildi.
Leiðandi og snjöll stjórnun.
Stjórnaðu BMW bílnum þínum með raddskipunum eða með því að snerta stjórnskjáinn. Fylgstu með virkum forritum hvenær sem er. Öruggur og þægilegur akstur hefur aldrei verið einfaldari.
Betri tenging. Sérsniðið að þér.
BMW ConnectedDrive breytir hverri ferð í sérsniðið ævintýri. Fáðu aðgang að fjölbreyttari öppum og skapaðu þína eigin stafrænu upplifun. Sjálfvirkar þráðlausar uppfærslur, alltaf.
Þráðlaust og fyrirhafnarlaust.
Auðveld samþætting við snjallsímann. Notaðu Apple CarPlay® eða Android Auto® eins og venjulega. Stjórnaðu uppáhalds öppunum þínum á þægilegan hátt í gegnum stýrikerfi BMW bílsins.
Helstu eiginleikar BMW ConnectedDrive.
Eftir að þú hefur fest kaup á BMW og skráð BMW ID opnast fyrir þér valin BMW ConnectedDrive þjónusta sem þú getur sniðið að eigin þörfum. Kynntu þér kostina sem bíllinn þinn hefur upp á að bjóða.
BMW Digital Premium.
Einn pakki, fjölmargir eiginleikar. Áhyggjulausi heildarpakkinn veitir þér aðgang að nýju öryggisaðstoðinni, bestu leiðsögninni og fjölbreyttu úrvali afþreyingar — gagnamagn innifalið.¹
Aukið öryggi.
Öryggisaðstoðin skráir skemmdir á bílnum þegar hann stendur kyrr eða tilraunir til þjófnaðar og tilkynnir um slíkt.
Háþróuð leiðsögn.
Umferðarupplýsingar í rauntíma, þrívíddarbyggingar og nákvæm staðsetning.
Meiri afþreying.
Myndstreymi og tölvuleikir í bílnum — með gagnamagni innifalið — láta biðina líða áður en þú veist af.
Öpp fyrir BMW M.
Skoðaðu ítarlegri upplýsingar um bílinn, mældu hröðunartíma og njóttu spennandi myndefnis sem er eingöngu í boði fyrir M-gerðirnar eða bíla með M Sport pakkann.
Sveigjanleg áskrift.
Þú getur sagt upp eiginleikum og þjónustu hvenær sem er og stillt áskriftartíma hvers eiginleika frá einum mánuði upp í eitt ár.
BMW Digital Premium. Þjónusta sem hentar öllum aðstæðum.
Lætur þig vita samstundis. Öryggisaðstoðin.
Öryggisaðstoðin gerir þér kleift að fylgjast með BMW bílnum þínum allan sólarhringinn. Skynjarar láta þig vita ef bíllinn verður fyrir skemmdum í stæði eða ef reynt er að stela honum, og myndavélar taka allt upp.²
Betri leiðsögn með BMW Maps.
Betri upplýsingar á veginum með fleiri möguleikum. Nákvæmar þrívíddarmyndir, rauntímaumferð á kortinu og aðrir eiginleikar hjálpa þér að rata.
Enn meira stafrænt. Enn meiri gæði.
Fáðu skjóta yfirsýn yfir helstu viðbætur í BMW Digital Premium pakkanum fyrir BMW bílinn þinn.¹
|
|
Stafrænn staðalbúnaður |
BMW Digital Premium |
|---|---|---|
|
Öryggisaðstoð |
. |
. |
|
Skráning og tilkynning um ákeyrslu í stæði |
– |
Já |
|
BMW Drive Recorder |
– |
Já |
|
Anti-Theft Recorder² |
– |
Já |
|
Fjarsýn í þrívídd og inn í bílinn |
– |
Já |
|
Bættir eiginleikar í BMW Maps |
. |
. |
|
Umferðarupplýsingar í rauntíma |
Þegar leiðsögn er virk |
Jafnvel án virkrar leiðar á öllu kortinu |
|
Upplýsingar um umferðarmyndavélar |
– |
Já |
|
Framsýn leiðsögn |
– |
Já |
|
Gervitungla- og þrívíddarsýn |
– |
Já |
|
Afþreying³ |
. |
. |
|
Myndbandsstreymi⁴ |
– |
Já |
|
Tónlistarstreymi⁴ |
– |
Já |
|
Tölvuleikir⁴ |
– |
Já |
|
Myndsímtöl⁴ |
– |
Já |
|
Aðgangur að öppum frá þriðja aðila⁴ |
– |
Já |
|
Gagnamagn innifalið |
– |
Já |
|
BMW M öpp |
|
|
|
M Channel, M Cockpit, M Drag Meter o.fl.⁵ |
– |
Já |
Pantaðu einstaka búnaðarþætti og þjónustu.
Vertu alltaf með nýjustu uppfærslurnar og bestu upplýsingarnar á veginum. BMW ConnectedDrive samþættir stafrænt líf þitt við bílinn og eykur bæði þægindi og öryggi. Snjöll aðstoðarkerfi fyrir ökumenn auðvelda daglegan akstur.
Svona uppfærir þú hugbúnaðinn í BMW bílnum þínum.
Um leið og nýjar hugbúnaðaruppfærslur eru í boði eru þær sóttar sjálfkrafa í snjallsímann þinn — þaðan getur þú auðveldlega flutt þær yfir í bílinn. Uppsetninguna getur þú síðan ræst úr fjarlægð í gegnum appið eða beint í bílnum. Eftir um 20 mínútur er BMW þinn kominn með nýjasta hugbúnaðinn.
Helstu nýjungar í hugbúnaðaruppfærslunum.
Það efni sem er í boði fyrir BMW bílinn þinn er að finna í útgáfulýsingunni í bílnum eða í My BMW appinu. Uppfærsluvalkostir og innihald eru mismunandi eftir landi, bílgerð, búnaði og ástandi bílsins.
Fleiri BMW öpp. Meiri akstursánægja.
BMW öpp bjóða upp á fjölda hagnýtra eiginleika og þjónustu. Tengstu BMW bílnum þínum eða einfaldaðu daglega aksturinn með snjöllum þjónustum frá BMW.
Algengar spurningar um BMW ConnectedDrive.
Lagalegur fyrirvari.
Vegna reglulegra hugbúnaðaruppfærslna geta skjámyndir sem birtast í þessu efni verið frábrugðnar raunverulegri skjámynd í bílnum þínum.
¹ Umfang, kröfur og framboð fer eftir bílgerð, búnaði og landi.
² Valfrjálsa þjófnaðarviðvörunarkerfið er forsenda þess að fá tilkynningar og myndupptöku af þjófnaðartilraunum.
³ Stök áskrift kann að vera nauðsynleg fyrir tiltekin öpp frá þriðja aðila — slíkar áskriftir eru ekki innifaldar í BMW Digital Premium.
⁴ Fáanlegt með stafrænum staðalbúnaði í gegnum tjóðrun (tethering) og Wi-Fi.
⁵ Fáanlegt fyrir M-bíla og BMW bíla með valfrjálsa M Sport pakkanum.
⁶ Eiginleikinn er fáanlegur með BMW Digital Premium.
⁷ Fáanlegt fyrir bíla með BMW Operating System 9 eða nýrra.
⁸ Fáanlegt fyrir bíla með BMW Operating System X.