Website currently not fully available

Our tool for managing your permission to our use of cookies is temporarily offline. Therefore some functionality is missing.

Made different.
To feel different.

Um BMW.

Þekkir þú BMW leiðina?

Nú til dags eru margar aðferðir við að framleiða bíla. En BMW er öðruvísi. Smíðaður öðruvísi. Keyrir öðruvísi. Spyrðu hvers vegna og svörin eru mörg. Við hönnum af fullkominni ástríðu. Við prófum að ystu mörkum. Allt sem við gerum er mælt gegn okkar eigin kröfum sem þola engar málamiðlanir. En þegar upp er staðið er hver BMW sniðinn að þér.
Allt frá þeirri tækni sem við notum til þjónustunnar sem lætur þig finna fyrir því að hugsað sé um þig, hvar og hvenær sem er. Kynntu þér BMW leiðina hér. Enn betra: upplifðu hana í hverjum einasta akstri. Það er hugmyndin á bak við “MADE DIFFERENT. TO FEEL DIFFERENT.”

Mælikvarðinn á okkar gæði? Traust þitt.

Fyrsti aksturinn á BMW er einstakur. Og við tryggjum að hann sé líka öruggur. Þess vegna prófum við aldrei á aðeins einum stað eða á aðeins einn hátt. Áður en hann kemst til þín er hver BMW ekinn á prófunarbrautum í fleiri en 30 löndum, allt frá ísilögðum vegum að miklum hita og krefjandi landslagi. Alls eru það 1,8 milljónir prófunar­kílómetra. Í stærstu lóðréttu hljóðeinangruðu vindgöngum í heimi, sem eru næstum 100 metrar á lengd og með vindum allt að 250 km/klst, geta verkfræðingar okkar numið minnstu loftaflfræðileg hljóð og fínstillt loftstreymi til að bæta þægindi og skilvirkni. Allt þjónar þetta einum tilgangi: gæðum sem þú getur treyst, í hverjum akstri.

0:00
0:00 /  0:00
Myndin sýnir stafrænt hermaðan, aflagaðan bílskrokk með gulum og svörtum merkingum eftir árekstrarpróf.

Stafræn hermun. Prófaður í raunverulegum aðstæðum.

BMW er fyrsti framleiðandinn sem skiptir sumum líkamlegum árekstrar­prófum út fyrir staðfest sýndarlíkön í blandaðri formviðurkenningu. Með því að sameina háþróaðar hermanir og raunveruleg árekstrarpróf, nærri 10.000 frá árinu 2005. Því þegar kemur að öryggi skiptir reynsla á veginum jafn miklu máli og gögn í rannsóknarstofunni. Við látum ekkert ráðast af tilviljun.

Hvert sem þú ferð erum við skammt undan.

Við afhendum þér ekki bara bíl. Við gefum þér loforð. Að við munum fylgja þér eftir löngu eftir að þú byrjar að aka BMW. Með um 4.000 BMW stöðvum um heim allan og meira en 120.000 vottuðum þjónustusérfræðingum er aðstoð alltaf innan seilingar. Stafrænt þegar við á, mannlegt þegar það skiptir máli. Og stundum erum við þegar farin að gæta að þér áður en þú veist af því að þú þurfir á okkur að halda. BMW Service með Proactive Care nýtir gagnagreind og fyrirsjáanlega tækni til að koma auga á möguleg vandamál snemma og hefur samband á innan við tveimur sekúndum. My BMW appið heldur eigendum upplýstum og tengdum við hvert fótmál. 

0:00
0:00 /  0:00
Myndin sýnir manneskju sem stendur við hlið BMW og notar snjallsímann sinn til að hafa samband við BMW þjónustu.

Með þér á öllum ferðum.

Neyðarþjónusta þegar þú þarft á henni að halda. Ef þú þarft meiri hjálp er Remote Help fjarþjónustan ræst innan fimm mínútna. Og þurfi aðstoðin að koma til þín getur hún verið mætt innan klukkustundar. Á bak við þetta allt saman er samtengt vistkerfi, hannað til að halda þér á ferðinni með sem minnstum truflunum. Allt frá sérfræðiþjónustu á BMW þjónustustöðvum um heim allan til snjallrar stafrænnar aðstoðar á veginum, hver hluti vinnur saman að því að gera akstur á BMW auðveldari, áhyggjulausari og þægilegri, hvert sem þú ferð. Svo þú getir slakað á. 

Besta tæknin snýst ekki um tækni. Hún snýst um þig.

BMW þinn bregst ekki bara við veginum. Hann bregst við þér. Öll snjallkerfi eru hönnuð til að gera akstursupplifunina náttúrulegri, áreynslulausari og tengdari. Í stjórnrými bílsins er allt sniðið að ökumanninum. BMW Panoramic Vision birtir lykilupplýsingar beint í náttúrulegu sjónsviði þínu, svo augu þín haldist þar sem þau eiga að vera: á veginum. Þær aðgerðir sem þú notar mest eru alltaf innan seilingar. Með BMW Symbiotic Drive starfar tæknin með þér á lipran og leiðandi hátt. En það nær þó enn dýpra. BMW Heart of Joy samhæfir hröðun, hemlun og stýringu á millisekúndum í gegnum eina miðlæga afkastamikla stýrieiningu. Í stað þess að aðskilin kerfi bregðist við hvert í sínu lagi svarar BMW þinn sem ein heild.

0:00
0:00 /  0:00
Myndin sýnir manneskju horfa á stafrænt stjórnrými BMW þar sem snjalla aðstoðin gerir leiðandi raddstýringu mögulega.

Strafrænt. Leiðandi. Ökumannsmiðaður.

Með BMW Intelligent Personal Assistant þarftu ekki að muna skipanir. Biddu um leiðsögn. Breyttu stillingum. Sameinaðu nokkrar beiðnir í einni setningu. Það skynjar samhengið, lærir þínar venjur með tímanum og veit meira að segja hvenær er betra að segja ekkert. Því betur sem kerfið kynnist þér, því minna þarftu að segja.

0:00
0:00 /  0:00

Hnökralaus aðstoð.

Í meira en 20 ár hafa akstursaðstoðar­kerfi BMW hjálpað ökumönnum að vera meðvitaðir um það sem gerist í kringum þá. Skynjarar og háþróuð gervigreind vakta umhverfið stöðugt og styðja við hnökralausa umbreytingu milli þess að aka og að vera ekið. Aðstoðin grípur inn í þegar þú þarft á henni. Og heldur sig til hlés þegar þú þarft hana ekki. Því besta tæknin dreifir ekki athygli þinni frá akstrinum. Hún gerir hvern akstur léttari, þægilegri og enn ánægjulegri.

Að hanna bíl er eitt. Við hönnum tilfinningu.

Gleymdu því sem knýr okkur. Það sem skiptir máli er hvað knýr þig. Sumir bílar koma þér frá A til B. BMW fær þig til að velja lengri leiðina heim. Um leið og þú gefur í, smellur eitthvað inn. Stýringin er eðlislæg. Hver beygja flæðir í þá næstu. Hver svörun er tafarlaus, náttúruleg og lifandi. Þú ert ekki að hugsa um aksturinn. Þú einfaldlega nýtur hans. Já, hjá BMW verja verkfræðingar okkar árum í að grannskoða hvert smáatriði, millisekúndur, millimetrar, endalaus fínstilling. En ekkert af þessu er ætlað að vera bara á blaði. Þetta á að verða að tilfinningu. Tilfinningin fyrir því að bíllinn skilji þig. Hreyfist í takt við þig og fær þig til að brosa án tilefnis. Stundum er það hljóðláta sjálfstraustið sem fylgir fullkominni stjórn. Stundum er það þetta litla „jess” sem þú segir óafvitandi í miðri krappri beygju. Stundum er það að gleyma stund og stað á vegi sem þú ætlaðir ekki að velja. Það er það sem gerir BMW öðruvísi. Ekki aðeins krafturinn. Ekki bara nákvæmnin. Heldur akstursgleðin sem fylgir þér löngu eftir að ferðinni lýkur.

0:00
0:00 /  0:00

Hönnun breytist. Karakterinn helst.

“Made different” merkir að BMW er ekki hannaður eingöngu til að líta vel út í kyrrstöðu. Hann er hannaður til að vekja hjá þér tilfinningu um leið og þú sérð hann, jafnvel áður en þú sest inn. Kynslóðum saman hafa tiltekin smáatriði gert BMW auðþekkjanlegan í sjón: Kidney-grillið, sem kynnt var fyrst árið 1933, og Hofmeister Kink sem fylgdi tæpum 30 árum síðar. Í gegnum áratugina hafa þessi einkenni tekið breytingum samhliða mörgum öðrum atriðum. Því á meðan tæknin breytist og hönnunin heldur áfram að þróast, helst karakterinn. Þetta á við að utan og innan. Í BMW ert þú í miðju alls. Hver skjár. Hvert smáatriði. Hannað í kringum þig. Allt sem þú þarft er einmitt þar sem þú þarft það, og allt sem þú þarft ekki heldur sig til hlés. Stjórnrýmið er byggt upp í kringum það sem er nauðsynlegt fyrir þig og skapar rými sem er leiðandi og eðlilega tengt ökumanninum. Ekki yfirþyrmandi. Ekki flókið. Einfaldlega skýrt, markvisst og auðþekkjanlega BMW. BMW er gerður öðruvísi af því að hann hefur ekki bara sitt eigið hönnunarmál. Eins og þú hefur hann sinn eigin persónuleika. Þegar allt kemur til alls er það karakterinn sem gerir muninn. 

0:00
0:00 /  0:00

Kynntu þér allar BMW gerðirnar.

Kynntu þér allt BMW úrvalið og finndu bílinn sem fellur fullkomlega að óskum þínum og þörfum.

Lagalegur fyrirvari.

BMW i5 M60 xDrive Sedan: Orkunotkun skv. WLTP í blönduðum akstri í kWh/100 km: 19,5–17,1; Rafdrægni, WLTP í km: 473–540

BMW iX3 50 xDrive: Orkunotkun skv. WLTP í blönduðum akstri í kWh/100 km: 18,1–15,1; Rafdrægni, WLTP í km: 673–805

BMW iX5 60 xDrive: Orkunotkun skv. WLTP í blönduðum akstri í kWh/100 km: 23,9 – 20,1; Rafdrægni, WLTP í km: 645 – 845

BMW X5 40 xDrive: Orkunotkun, blandaður skv. WLTP í l/100 km: 9,3 – 8,6; CO2-losun, blandaður akstur WLTP í g/km: 213 – 196

BMW i7 60 xDrive Sedan: Orkunotkun skv. WLTP í blönduðum akstri í kWh/100 km: 21,9 – 18,2; Rafdrægni, WLTP í km: 581 – 727

BMW M760e xDrive Sedan: Orkunotkun skv. WLTP í blönduðum akstri í kWh/100 km: 18,2 – 16,7; Rafdrægni, WLTP í km: 69 – 80